Myndlistasýning

Þann 3. júní var opnuð sýning á tölvuteikningum eftir burtfluttan Blönduósing, Sigtrygg Einar Sævarsson. Sigtryggur er 9 ára, nemandi í sérdeild fyrir einhverfa í Langholtsskóla.

Sigtryggur Einar er fæddur á Blönduósi 18. júlí 1996. Þegar hann var á þriðja ári greindist hann með einhverfu. Aðaláhugamál hans eru dýr, þá sérstaklega íslensku húsdýrin. Vegna fötlunar hans hafa myndir lengi verið stór hluti af lífi hans. Frá u.þ.b. 4 ára aldri hefur Sigtryggur teiknað mikið og þá aðallega myndir af dýrum. Hann teiknar aðallega með trélitum og svo í tölvu. Tölvumyndirnar teiknar hann í litlu forriti sem fylgir öllum Windows stýrikerfum, Paint. Í því forriti notar hann tölvumúsina til að teikna. Til gamans má geta að enginn kynnti hann fyrir þessu forriti svo vitað sé. Fyrstu tölvumyndirnar eftir hann fann pabbi hans í tölvunni sinni. Sævar fór að taka eftir skrám í tölvunni sinni sem hétu frekar einkennilegum nöfnum og þegar að var gáð voru það teikningar eftir Sigtrygg sem hann hafði valið nafn og vistað.



 

 


 
© efrimyrar.is / Anna Gísladóttir efrimyrar@efrimyrar.is