Egg geymast best í kæli.
Látið mjórri endann á egginu
snúa niður.
Ný egg henta illa til suðu. Skurninn losnar
illa af. Best er að láta egg vera orðin
7 – 10 daga gömul til að hægt sé
að ná skurninu af eftir suðu.
Suðutími eggja:
Linsoðin 3 - 4 mín.
Mjúksoðin 6 - 7 mín.
Harðsoðin 10 - 12 mín.
Ýmislegt um
egg frá húsfreyjunni á Efri - Mýrum
Sennnilega hafa hænsni
verið í farteski landnámsmanna á
Íslandi og lengst af verið það sem
ég hef kallað heimilishænsn. 6 - 10 -
15 púddur á bæ, þar af einn
hani til fjölgunar. Þetta gátu verið
mislynd grey, hanarnir illir og hænurnar gjarnar
á að fela eggin og liggja á þeim
(unga út) þegar húsmæðurnar
þurftu alveg nauðsynlega á hverju eggi
að halda. En egg voru nauðsyn. Aldrei var jólakakan
jafngóð ef í hana vantaði eggin,
að ég tali nú ekki um annan bakstur.
Enda var reynt að geyma egg frá því
seint á haustin og fram í desember, svo
að væri nú hægt að baka jólabaksturinn.
Stærð þeirra skiptir líka máli.
Allar þær uppskriftir sem ég hef glímt
við um dagana gera ráð fyrir meðaleggi.
Sú merka matreiðslubók, Matur og drykkur,
eftir Helgu Sigurðardóttur segir fyrsta flokks
eggið vera á bilinu 40-55 grömm. Því
hlýtur að vera að uppskriftir hennar í
þessari firnaþykku bók geri ráð
fyrir þessari þyngd eggjanna.
Til gamans ætla ég að láta það
fylgja hér að þessi bók var fyrsta
jólagjöfin sem Gísli gaf mér
og það var meir en gaman að sjá svipinn
á föður mínum það aðfangadagskvöldið.
En áfram með stærð eggja. Í
venjulegri uppskrift að t.d. rjómatertubotnum
er gert ráð fyrir 4 eggjum og af biturri reynslu
veit ég að þau eiga að vera svona
meðalegg að þyngd, EKKI yfir 90 grömm
hvert. Elsta dóttirin fæst til að votta
þetta líka, hún var eitt sinn að
baka smákökur sem hún kallaði túkalla
og voru alltaf bakaðir af mömmu fyrir jólin,
hún notaði fjögur stór egg, afleiðingin
varð eitthvað sem hún kallaði hundraðkalla
og flæddi um alla plötuna og festist saman.
Ég hef líka oft skemmt mér á
kostnað annarra þegar fólk er að
kvarta undan gömlum eggjum, það hafi verið
ómögulegt að ná utanaf þeim
skurninum. Þarna er ekki ástæðan
of gömul egg, heldur of ný. Það
er staðreynd að ný egg eru óþolandi
í potti, þau þurfa að lágmarki
að vera orðin viku, tíu daga gömul.
Eins þótt eigi að steikja þau,
glæný egg fljóta um pönnuna og
eru leiðinlega skotgjörn….svo mann brennir
sig við eldamennskuna og engum finnst það
gott.
Þau geymast betur ef mjórri endinn snýr
niður, er eitthvað sem áralöng reynsla
hefur kennt mér og geymast líka ótrúlega
lengi í góðum ísskáp eða
kæli.
Halla
Jökulsdóttir