Eggjabúið Efri Mýrum.

Norðuregg

Vorið 1980 fluttu núverandi ábúendur á jörðina Efri Mýrar. Strax var farið að vera með heimilishænur og á árinu 1982 var farið að nota hluta gamalla fjárhúsa undir eggjaframleiðslu. Þessi starfsemi vafði uppá sig og árinu 1984 var búið að innrétta eldri fjárhúsin þannig að þar var hægt að hafa um 1100 varphænur.

Vorið 1986 var ráðist í að byggja sérstakt hænsnahús, með búrum sem í mátti hafa um 3500 varphænur. Húsið var tekið í notkun í janúar 1987. Áætluð framleiðsla á ári er nú um 50-60 tonn. Aðalmarkaðssvæði búsins er í Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum, þá er talsverðu af eggjum dreift í Þingeyjarsýslum í samstarfi við Klaufa ehf.

Á árinu 1987 tók búið þátt í stofnun Norðurfugls ehf sem sér um uppeldi á varphænum fyrir ýmsa eggjaframleiðendur. Starfsemi þess félags er að Syðsta Ósi í Miðfirði.

Á árinu 2003 var stofnað félagið Norðuregg ehf, í samstarfi við Miklholtshellisbúið ehf og Klaufa ehf, en þetta félag sér um eggjadreifingu á austurlandi.

Á árinu 2004 var stofnað félagið Hænuegg ehf, í samstarfi við Miklholtshellisbúið ehf og Runólf Björn Gíslason, en þetta félag keypti Nesbúegg ehf sem er annað af tveimur stærstu eggjabúum landsins. Áætluð ársframleiðsla í því búi er um 800 til 1000 tonn. Talsvert stór hluti þeirrar framleiðslu fer á markað sem unnin vara.



 
© efrimyrar.is / Anna Gísladóttir efrimyrar@efrimyrar.is